Einkunnarorð okkar eru ÖRYGGI, UMHVERFIÐ, HAGUR og ÞÆGINDI.
ÖRYGGI er fólgið í nokkrum veigamiklum þáttum. Það eru öryggisbelti í hverju sæti í öllum okkar bílum. Öryggismyndband er sýnt fyrir brottför. Allir bílarnir eru settir á negld vetrardekk á hverju hausti, auk þess sem keðjur og annar vetrarbúnaður er yfirfarinn. Og síðast en ekki síst má nefna að allir bílarnir fara í reglubundið eftirlit á verkstæðinu okkar.
UMHVERFISMÁL eru mikilvægur þáttur stefnumörkun Hópbíla. Því höfum við innleitt vottað umhverfisstjórnunarkerfi í samræmi við alþjóðastaðalinn ISO-14001. Hópbílar aka einnig á Bíódísil sem mengar minna og smyr mun betur en venjuleg dísilolía.
ÞÆGINDI eru okkur mikið metnaðarmál. Innleiðing á öryggisstjórnun samkvæmt OHSAS 18001 er í fullum gangi. Allir bílarnir eru vel útbúnir og leggjum við áherslu á góða og þægilega framkomu bílstjóranna okkar. Þeir eru allir einkennisklæddir og veita alla mögulega aðstoð. DVD tæki eru í öllum bílunum og hægt er að fá bíla með karaoke og fartölvutengingu. Einnig er hægt að samtengja hljóðnemakerfi fimm bíla, þannig að einn leiðsögumaður getur talað í fimm bílum samtímis.
HAGUR þinn felst í því að Hópbílar leitast við að veita þér bestu þjónustu á hagstæðasta verði sem mögulegt er.