SMELLA HÉR-> HANDBÓK FRÍSTUNDABÍLSINS HAUST 2010  

 
 
01. júní 2010

Frístundabíllinn tilnefndur til foreldraverðlauna Heimilis og skóla

Það er okkur sem standa að Frístundabílnum mikil ánægja að hafa verið tilnefnd í tvígang til hinna árlegu Foreldraverðlauna Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra. Foreldraverðlaunin voru afhent í 15. sinn þann 1. Júní síðastliðinn, í Þjóðmenningarhúsi við Hverfisgötu.  Alls bárust  38 tilnefningar til Foreldraverðlaunanna.  Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt ein hvatningarverðlaun og tvenn dugnaðarforkaverðlaun.

Foreldraverðlaunin hafa unnið sér fastan sess í samfélaginu og vekja athygli á þeim mörgu verkefnum sem efla starf leik,- grunn,- og framhaldsskóla og öflugt og jákvætt samstarf heimila, skóla og samfélagsins. Heimili og skóli eru landssamtök foreldra á öllum þessum skólastigum og mikilvægt að samtökin veki athygli á því öfluga starfi sem þar fer fram.  Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra  afhenti verðlaunin.

Í tilefni af afhendingu verðlaunanna, voru þeim sem tilnefndir voru og öðrum gestum boðið til móttöku í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu að lokinni athöfn.

Starfsfólk og bakhjarlar Frístundabílsins þakka kærlega fyrir viðurkenninguna og mun hún verða okkur hvatning til áframhaldandi góðra verka. 

Bakhjarlar Frístundabílsins eru Hópbílar, Ríó Tintó Alcan, N1 og Fjarðarkaup ásamt góðum stuðningi frá Hafnarfjarðarbæ


 

 
                                                   

                                             
 

      Frístundabíllinn ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6000 | Fax: 599 6001 | fristundabillinn@fristundabillinn.is | Kennitala: 520397-2999