Hópbílar, Hagvagnar og Hagvagnar þjónusta hafa undanfarin misseri unnið að því að innleiða jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur Jafnlaunastaðals ÍST 85.
Stefnan er að því ferli ljúki með formlegri vottunarúttekt um miðjan desember.
Eitt af stóru verkefnunum hefur verið umfangsmikil greiningarvinna til að tryggja að öllu starfsfólki sé umbunað á jafnan hátt og að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar innan fyrirtækisins í samræmi við jafnlaunastefnu félaganna.
Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012.
Með innleiðingu staðalsins geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Jafnlaunastaðallinn ÍST85:2012 er stjórnunarstaðall fyrir jafnlaunakerfi. Staðallinn nýtist öllum fyrirtækjum og stofnunum óháð stærð, starfsemi, hlutverki og kynjahlutfalli. Hann tryggir fagleg vinnubrögð sem fyrirbyggja beina og óbeina mismunun vegna kyns.
Vottunaraðili metur hvort öll skilyrði staðalsins hafi verið uppfyllt og þar með unnt að veita viðkomandi fyrirtæki eða stofnun jafnlaunavottun.